Prana Bowen
60 mín - kr. 13.000
Tíminn byrjar á 15 mínútna prana heilun þar sem opnað er fyrir orkukerfin og þú fyllist af orku. Síðan tekur við 30-40 mínútna bandvefslosun þar sem líkaminn slakar og við það fer í gang ferli í bandvef líkamans til að laga það sem í ólagi er og koma á eðlislegu jafnvægi. Þegar unnið er með bandvefinn á þennan hátt losnar um spennu og við það verður verkjalosun og endurnýjun á orku. Prana og bowen vinnur mjög vel saman og þú endurnærist á líkama og sál
Bowen bandvefslosun
50 mín - kr. 13.000
Bowen meðferð er græðandi meðferð sem felst í röð hreyfinga yfir vöðva, sinar og aðra vefi og losar spennu sem hefur byggst upp, líkamlega og/eða andlega. Í Bowen meðferð er beitt mildum þrýstingi til þess að koma hreyfingu á vöðva og vefi. Við það fer í gang ferli í bandvef líkamans til að laga það sem í ólagi er og koma á eðlislegu jafnvægi. Þegar unnið er með bandvefinn á þennan hátt losnar um spennu og við það verður verkjalosun og endurnýjun á orku. Í bowen meðferð er því unnið með líkamann sem eina heild.
Prana heilun
15 mín - kr. 5000
Prana heilun er kraftmikil meðferð þar sem kerfið allt er fyllt orku. Unnið er á því sem er mest aðkallandi þá stundina. Prana heilun er líka fyrirbyggjandi sem þýðir að hún vinnur inn í framtíðina.
Prana er lífsorka eða það sem gefur öllu líf.
Þú getur komið í tíma með eitthvað ákveðið sem þú vilt vinna með eða leyft prana orkunni að vinna með það sem er mest aðkallandi þá stundina.
Ef ekki er mætt í bókaðan tíma, og ekki látið vita af forföllum með minnst 24 tíma fyrirvara, þá þarf að greiða hálft gjald